Leiðsögn
Kringlan 7, 103 Reykjavík
Kt. 510772-0249
Opið /Open
08:30 -16:00, mán.- fim.
08:30 -16:00, Mon. - Thur.
08:30 -15:00, föstudögum
08:30 -15:00, friday
Sími / Tel
+354 588 8670
Halldór Björnsson verður- og haffræðingur fjallar um loftslagsbreytingar á norðlægum slóðum
Þá er komið að öðrum fyrirlestri í fyrirlestraröð fræðslunefndar Leiðsagnar og Endurmenntunar Háskóla Íslands en þá mun Halldór Björnsson, doktor í veður- og haffræði og formaður vísindanefndar um loftslagsbreytingar fjalla um þær miklu breytingar sem nú eiga sér stað á norðurslóðum í fyrirlestri sem hann kallar: Breytingar á norðurslóðum vegna loftslagsbreytinga - áhrif á Íslandi og á hnattræna vísu.
Leiðsögn mun í samvinnu við Endurmenntun Háskóla Íslands bjóða félagsmönnum sínum upp á þrjá örfyrirlestra núna í maímánuði, þeim að kostnaðarlausu nema hvað greiða þarf kr. 1.000 í staðfestingargjald fyrir hvern fyrirlestur. Fyrirlestrarnir fara fram í gegnum fjarfundakerfið ZOOM, svo þátttakendur þurfa að vera með nettengda tölvu og góða internettengingu.
Fyrirlesturinn fer fram n.k. fimmtudag 14. maí kl. 16:00-17:00
Skráning á fyrirlesturinn fer fram á slóðinni:
https://www.endurmenntun.is/namskeid/stakt-namskeid?courseID=412V20
Einungis þarf að smella á skráningarhnappinn, skrá umbeðnar upplýsingar og greiða skráningagjaldið. Þeir sem skrá sig fá einnig senda upptökuna að fyrirlestrinum sem verður aðgengileg í viku eftir að fyrirlesturinn fór fram. Þannig er bæði hægt að vera með í rauntíma eða hlusta eftir á allt eftir þörfum. Það er ósk stjórnar og fræðslunefndar Leiðsagnar að félagsmenn geti notfært sé þessa fyrirlestra sér til ánægju og uppbyggingar á þessum fordæmalausu tímum.
Þessi vefsíða notar vafrakökur, með því að heimsækja vefsíðu okkar samþykkir þú notkun á vafrakökum. Sjá nánar.