03
Júní

Aðalfundur Leiðsagnar 9. júní 2020

Aðalfundur Leiðsagnar 2020

Aðalfundur Leiðsagnar verður haldinn þriðjudaginn 9. Júní 2020 

Fundarstaður : Salur erldri borgara að Stangarhyl 4, 110 Reykjavík.

Fundurinn hefst kl: 19:00 og húsið opnar 18:30

Hluti af salnum verður með 2 metra bili á milli fundargesta

Verið er að skoða möguleika á því hvernig leiðsögumenn geti fylgst með fundinum í gegnum netið. Nánari upplýsingar um það verða birtar á vefsíðu félagsins stuttu fyrir fund.

Áhugasamir eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband í gegnum netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. fyrir nánari upplýsingar.

Ársreikningar félagsins vegna ársins 2019 liggja frammi á skrifstofu félagsins fyrir aðalfund

Upplýsingar um lagabreytingatillögur, tilnefningar og framboð má nálgast hér neðst.

.

Dagskrá fundar: 

1. Skýrsla félagsstjórnar um störf félagsins á liðnu starfsári.

2. Reikningar félagsins, áritaðir af löggiltum endurskoðanda, lagðir fram til afgreiðslu.

3. Tillögur um lagabreytingar, sjá hér að neðan

4. Drög að fjárhagsáætlun skal lögð fram og tillaga um félagsgjald og fagdeildargjald.

5. Kosning formanns Leiðsagnar eða lýsing formannskjörs.

6. Kosning til stjórnar og trúnaðarráðs og kosning fulltrúa í fræðslu- og skólanefnd og aðrar trúnaðarstöður.

7. Kosning tveggja félagskjörinna skoðunarmanna reikninga til tveggja ára.

8. Önnur mál.

Stjórnin

Lagabreytingar, tillögur frá laganefnd stjórnar

Breytingar á texta laganna eru feitletraðar og eftir atvikum skýring á eftir

6. gr. Félagsgjöld

Allir félagar skulu greiða ákveðinn hundraðshluta af launum fyrir ferðaleiðsögn í félagssjóð. Launagreiðendur draga þetta gjald af launum leiðsögumanns í samræmi við kjarasamninga og skila því til félagsins, en sjálfstætt starfandi standa skil á þeim gjöldum sjálfir.

Aðalfundur ákveður hlutfall félagsgjaldsins á hverju ári. Lágmarksgjald til að öðlast félagsaðild og halda henni samsvarar félagsgjaldi af launum samkvæmt lægsta taxta félagsins fyrir 15 daga vinnu á síðustu 12 mánuðum fyrir 1. febrúar næst fyrir aðalfund ár hvert.

Félagar í deildum sbr. 7. gr. greiða að auki fast árgjald til sinnar deildar. Fjárhæð deildargjalds og skipting þess milli verkefna deildarinnar og félagsins skal ákveðin á aðalfundi samhliða ákvörðun félagsgjalds.

7. gr. Fagdeild og sérdeildir

Innan Leiðsagnar starfa fagdeild leiðsögumanna með leiðsögumenntun í samræmi við  staðalinn IST EN 15565:2008 og sérdeildir fyrir leiðsögumenn með aðra nánar tiltekna menntun í leiðsögn, tegund leiðsagnar, sérstök réttindi sem krafist er eða annað það sem nánar er tiltekið í reglum um sérdeildir. Aðild að félaginu getur falið í sér rétt til aðildar að einni eða fleiri sérdeildum og skal umsókn um aðild beint til viðkomandi deildar. Hver deild setur sér reglur um aðild og starfshætti sem stjórn Leiðsagnar staðfestir. 

Stjórn félagsins setur reglur um deildir félagsins og skulu þær njóta þjónustu félagsins og skrifstofu þess vegna starfsemi, fjármála og bókhalds eftir því sem nánar er ákveðið í reglum um þær.

Deildirnar skulu vera samstarfsvettvangur fyrir þá sem í þeim eru og gæta sérhagsmuna þeirra. Deildarfélagar kjósa sér þriggja manna stjórn sem skipuleggur starfsemi deildarinnar og kemur fram fyrir hennar hönd gagnvart stjórn félagsins.

Hver deild getur tilnefnt áheyranarfulltrúa í trúnaðarráð.

Skýring: Nafni breytt úr fagdeildir í sérdeildir og orðalagi breytt.

9. gr. Réttindi félagsmanna.

Félagar í Leiðsögn hafa, nema önnur ákvæði laga þessara eða einstakra sjóða mæli fyrir um annað:

a) málfrelsi, tillögu- og atkvæðisrétt á félagsfundum svo og kjörgengi til embætta og trúnaðarstarfa fyrir félagið. Enginn skal þó gegna því embætti eða þeim trúnaðarstörfum, sem hann var kosinn til, lengur en 6 ár samfellt. Atkvæðisrétt um kjarasamninga og verkfallsboðun skal miða við lokadag annars almanaksmánuðar á undan atkvæðagreiðslunni. Þeir einir hafa atkvæðisrétt sem á þeim degi höfðu greitt a.m.k. fjórfalt lágmarksgjald til að öðlast félagaðild sbr. 6. gr. á síðustu fjórum mánuðum fyrir þann dag eða áttfalt lágmarksgjaldið á síðustu 12 mánuðum fyrir þann dag.

b) rétt til að bera merki félagsins við vinnu sína í samræmi við lög félagsins og reglur sem stjórn þess setur.

c) rétt til að skrá sig á lista yfir leiðsögumenn sem Leiðsögn útbýr og birtir.

d) rétt á greiðslum úr sjóðum félagsins svo sem nánar er kveðið á um í reglugerðum sjóðanna.

Allir félagsmenn eiga rétt til aðstoðar félagsins vegna vanefnda atvinnurekenda á kjarasamningum.

Skýring: Atkvæðaréttur um kjaramál skýrður og þrengdur og settur hámarkstími á samfellda setu í embættum

12. gr. Stjórn

Stjórn félagsins skal skipuð fimm aðalmönnum, formanni og fjórum öðrum, auk fjögurra varamanna, kosnum á aðalfundi. Formaður skal kosinn sérstaklega til tveggja ára í senn, en aðrir stjórnarmenn skulu kosnir til tveggja ára – tveir í senn. Varamenn eru kosnir til eins árs. Hverfi kjörinn stjórnarmaður úr stjórninni skal varamaður taka við stöðu hans og gilda þá um hann þeir tímafrestir sem um aðalmanninn höfðu gilt. Stjórn kýs félaginu varaformann og ritara á fyrsta fundi eftir aðalfund.

Trúnaðarráði félagsins er heimilt að ákveða að formaður skuli kjörinn í allsherjaratkvæðagreiðslu. Fari slík atkvæðagreiðsla fram, skal henni lokið fyrir upphaf aðalfundar og úrslit kynnt á aðalfundi.

Ákvæði til bráðabirgða.

Á aðalfundi 2020 skal kjósa tvo stjórnarmenn til tveggja ára og tvo til eins árs.

 

Skýring: Stjórnarmenn verði kosnir til 2ja ára. 

 

15. gr. Ritari og gjaldkeri

Ritari ber ábyrgð á að gerðabækur félagsins séu haldnar og færðar í þær allar fundagerðir og lagabreytingar. Hann undirritar gerðabækur ásamt formanni. Ritari ber ábyrgð á birtingu fundargerða félags- og stjórnarfunda á vefsíðum félagsins innan 10 daga eftir samþykkt þeirra.

Gjaldkeri er ábyrgur fyrir eftirliti með bókhaldi, fjárreiðum, og innheimtu félagsgjalda. Gjaldkeri ber einnig ábyrgð á skilagreinum atvinnurekenda. 

Skýring: Felldar saman tvær greinar. Felld út ábyrgð gjaldkera á punkum en bætt við ábyrgð á skilagreinum.

16. gr. Kjörnefnd

Stjórn félagsins getur með samþykki trúnaðarráðs falið sérstakri 3ja manna kjörstjórn það verkefni að gera tillögur um frambjóðendur til trúnaðarstarfa innan félagsins sem kosið er í á aðlafundi. Skal fjöldi frambjóðenda minnst vera einn fyrir hvert trúnaðarstarf sem kosið skal í. Einstökum félagsmönnum er einnig heimilt að bjóða sig eða aðra fram til trúnaðarstarfa án atbeina kjörnefndar. Öllum frambjóðendum skal gefinn kostur á að kynna framboð sitt á heimasíðu félagsins. 

 

Skýring: Nýtt ákvæði um heimild til að mynda kjörnefnd með tilteknu hlutverki

 

17. gr. Trúnaðarráð

Í trúnaðarráði eiga sæti aðalmenn og varamenn í stjórn félagsins, sex félagsmenn og jafn margir varamenn kosnir á aðalfundi og einn áheyrnarfulltrúi hverrar fagdeildar eða sérdeildar.

Trúnaðarráð er samninganefnd félagsins. Það getur kosið viðræðunefnd til að annast samningaviðræður og gerð kjarasamninga með fyrirvara um samþykki trúnaðarráðs.

Trúnaðarráðið skal fylgjast náið með launaþróun og breytingum á vinnumarkaði og framkvæmd kjarasamninga félagsins og kýs eða tilnefnir kjaranefnd til að sinna þeim verkefnum.

Trúnaðarráðið skal jafnframt vera stjórn til ráðgjafar og aðstoðar í almennum málefnum félagsins.

Formaður félagsins er formaður trúnaðarráðs og ritari félagsins ritari þess.

Formaður kveður trúnaðarráð til fundar með þeim hætti sem hann telur best henta og er trúnaðarráðsfundur lögmætur þegar meirihluti ráðsins sækir fundinn.

Trúnaðarráð skal kalla til fundar eigi sjaldnar en tvisvar á hverju starfsári þess.

Formaður getur kallað saman trúnaðarráð stjórninni til aðstoðar þegar ýmis félagsleg vandamál ber að höndum og ekki eru tök á að ná saman félagsfundi og ræður einfaldur meirihluti úrslitum í slíkum málum.

Skýring: Skýrari ákvæði um setu í trúnaðarráði og að fulltrúar sérdeilda hafi stöðu áheyrnarfulltrúa. Skýrari ákvæði um viðræðunefnd og kjaranefnd og verksvið þeirra.

18. gr. Fastanefndir

Innan félagsins starfa fastanefndir, ritnefnd, fræðslunefnd, fagráð og alþjóðanefnd skipaðar þremur félagsmönnum hver. Einn er tilnefndur af stjórn en tveir skulu kosnir til tveggja ára í senn á aðalfundi. Nefndirnar kjósa sér formann og skipta með sér verkum.

 

Ritnefnd sér um öflun og gerð efnis sem varða starfsemi félagsins og störf leiðsögumanna til kynningar út á við og miðlunar milli félagsmanna. Hún sér um heimasíðu félagsins og aðra samfélagsmiðla þess, birtingu á hagnýtum upplýsingum fyrir leiðsögumenn og annast útgáfu á kynningarefni og öðru sem félagið kann að ákveða. 

 

Fræðslunefnd sér um fræðslu á vegum félagsins um efni sem tengist leiðsögustarfinu og verkefnum leiðsögumanna við kynningu á landinu, þjóðinni og menningu þess. Hún efnir til fræðslufunda um hagnýt og menningaleg efni, skipuleggur kynnisferðir fyrir leiðsögumenn, heimsóknir á áhugaverða staði, fræðslufundi og aðra viðburði.

 

Fagráð vinnur að stefnumótun í menntunar- og réttindamálum leiðsögunmanna og, kemur afstöðu félagsins í þeim á framfæri. Það annast samstarf við skóla sem kenna leiðsögn ferðamanna og annast skipulagningu námskeiða fyrir félagsmenn og fer með málefni sem varða starfsþjálfun og hefur umsjón með raunfærnimati.

 

Alþjóðanefnd annast samskipti og samstarf við samtök leiðsögumanna á Norðurlöndum, IGC, og í Evrópu, FEG, svo og félög leiðsögumanna í einstökum löndum eftir því sem tilefni er til.

 

Nefndir þessar starfa í nánu samráði við stjórn Leiðsagnar og skila henni yfirliti yfir störf sín svo oft sem þurfa þykir og greinargerð til aðalfundar félagsins.

 

Ákvæði til bráðabirgða: Fyrst skal kosið skv. grein þessari á aðalfundi 2020 og skal þá kosinn einn fulltrúi í hverja fastanefnd til eins árs og einn til tveggja ára.

 

Skýring: Nýskipan nefnda á vegum félagsins.

 

19. gr. Félagsfundir

Félagsfundir skulu haldnir þegar félagsstjórn telur þess þörf eða minnst 20 félagsmenn óska þess skriflega við stjórn félagsins og tilgreina fundarefni. Boða skal til fundarins innan tveggja vikna frá því að slík beiðni berst. Fundir skulu boðaðir með minnst þriggja daga fyrirvara með tölvupósti en bréflega til þeirra sem ekki hafa gefið upp netfang. Einnig skal birta auglýsingu á heimasíðu félagsins. Fundi í sambandi við vinnudeilur má boða með skemmri fyrirvara.

Fundur er lögmætur ef löglega er til hans boðað. Verði ágreiningur um fundarsköp úrskurðar fundarstjóri hverju sinni með rökstuddum úrskurði í samræmi við almenn fundarsköp. Óski félagsmaður eftir skriflegri atkvæðagreiðslu á félagsfundi er fundarstjóra skylt að verða við þeirri ósk. Í atkvæðagreiðslum á fundum félagsins ræður einfaldur meirihluti atkvæða nema lög kveði á um annað.

Almennan félagsfund skal að jafnaði halda að ákvörðun trúnaðarráðs vegna undirbúnings kjarasamninga og til kynningar á samningum þegar þeir hafa verið gerðir.

Skýring: Bætt við ákvæði um félagsfundi vegna kjarasamninga.

 

21. gr. Aðalfundur

Aðalfundur félagsins skal haldinn á tímabilinu 1. mars til 1. maí ár hvert. Aðalfundur skal boðaður með dagskrá á vefsíðu félagsins með a.m.k. einnar viku fyrirvara. Til fundarins skal jafnframt boðað með tölvupósti til þeirra sem hafa gefið upp netfang og er hann lögmætur ef löglega er til hans boðað.

Á hverjum aðalfundi skal liggja frammi skrá yfir félaga sbr. 3. grein og 7. grein. Félagaskrá skal liggja frammi fjölrituð eða prentuð.

Stjórn félagsins skal auglýsa frest til framboðs í trúnaðarstöður og fyrir tillögur til lagabreytinga einum mánuði fyrir aðalfund ár hvert.

Framboðsfrestur skal vera minnst 7 sólarhringar fyrir aðalfund og skal tillögum skilað til skrifstofu Leiðsagnar innan þess tíma. Framboð verði send út með fundarboði aðalfundar eigi síðar en einni viku fyrir aðalfund. Kjósa skal stjórn og trúnaðarmannaráð á aðalfundi. Stjórn skiptir með sér verkum á fyrsta fundi eftir aðalfund. Heimilt er þó hverjum félagsmanni að koma með breytingartillögur um félaga í einstakar trúnaðarstöður eða koma fram með nýja heildartillögu um skipan félaga í trúnaðarstöður næsta kjörtímabil. Breytingartillögu skal fylgja skrifleg heimild frá þeim, sem stungið er upp á.

Skýring: Felld niður kvöð um framlagningu skrár um félaga í sérdeildum og bætt inn heimild til að birting félagaskrár á heimasíðu geti komið í stað pappírsbirtingar.

22. gr. Dagskrá aðalfundar

Dagskrá aðalfundar skal vera:

1.      Kosning fundarstjóra og annarra starfsmanna fundarins

2.      Skýrsla félagsstjórnar um störf félagsins á liðnu starfsári.

3.      Reikningar félagsins og sjóða þess, áritaðir af löggiltum endurskoðanda, lagðir fram til afgreiðslu.

4.      Tillögur um lagabreytingar ef fyrir liggja.

5.      Fjárhagsáætlun lögð fram og tillaga gerð um félagsgjald og sérdeildargjöld.

6.      Kosning formanns eða lýsing formannskjörs.

7.      Kosning til stjórnar

8.      Kosning til trúnaðarráðs.

9.      Kosning fulltrúa í fastanefndir og aðrar trúnaðarstöður.

10.  Kosning stjórnar sjúkrasjóðs félagsins.

11.  Kosning tveggja félagskjörinna skoðunarmanna reikninga til tveggja ára.

12.  Önnur mál.

Skýring: Ákvæði um kosningu embættismanna fundarins og dagskrá breytt til samræmis við breytingatillögur.

23. gr. Sjóðir

Sjóðir félagsins skulu vera:

1. Félagssjóður.

2. Sjúkrasjóður.

3. Endurmenntunarsjóður.

Svo og aðrir sjóðir sem stofnaðir kunna að verða.

Sjóðir félagsins aðrir en félagssjóður skulu hafa sérstaka reglugerð samþykkta á aðalfundi. Reglugerðum sjóða má aðeins breyta á aðalfundi. Reglugerð hvers sjóðs skal tilgreina hlutverk sjóðsins, hverjar tekjur hans skulu vera, hvernig verja skuli fé hans og hvernig honum skuli stjórnað.

Stjórn Sjúkrasjóðs hefur eftirlit með  rekstri hans og ákveður greiðslur úr honum í samræmi við reglugerð um hann. Aðalfundur kýs þrjá menn og tvo til vara, sem ekki sitja í stjórn félagsins, í stjórn sjóðsins til tveggja ára í senn. Ágreiningi um ákvarðanir stjórnar Sjúkrasjóðs má vísa til stjórnar félagsins til úrskurðar.

 

Ofantaldir sjóðir greiða allan kostnað af starfsemi félagsins.

Sjóðir félagsins skulu ávaxtaðir á tryggan hátt í ríkisskuldabréfum eða í ríkistryggðum skuldabréfum, í bönkum, í sparisjóðum og skuldabréfum tryggðum með veði í fasteign. Við meiriháttar ráðstafanir á eignum félagsins þarf samþykki félagsfundar.

Skýring: Sjúkrasjóði sett stjórn

29. gr. Lagabreytingar

Lögum þessum má aðeins breyta á aðalfundi félagsins enda hafi breytinganna verið getið í fundarboði.

Tillögur um lagabreytingar skulu hafa borist til skrifstofu félagsins fyrir 15. dögum fyrir aðalfund og skulu þær sérstaklega kynntar á heimasíðu félagsins og fylgja aðalfundarboði.

Til þess að lagabreytingar nái fram að ganga skulu þær hljóta samþykki 2/3 hluta gildra atkvæða.

Lagabreytingar taka gildi um leið og þær hafa verið samþykktar og skal leggja þær fyrir miðstjórn ASÍ til staðfestingar.

 

Skýring: Til áréttingar á gildistöku samþykktra lagabreytinga.

Að auki barst ein lagabreytingatillaga fyrir tilskildar frest skv 29.gr. laga félagsins. 

Við 12. gr. bætist eftirfarandi setning (leturbreytta setningin):

Stjórn félagsins skal skipuð sjö aðalmönnum, formanni og sex öðrum, auk tveggja

varamanna, kosnum á aðalfundi. Varamenn eru kosnir til eins árs. Formaður skal kosinn

sérstaklega til tveggja ára í senn, en aðrir stjórnarmenn skulu kosnir til þriggja ára – tveir í

senn. Varamenn eru kosnir til eins árs.

Ný setning:

Auk stjórnarmanna kosnum á aðalfundi eiga sæti í stjórn félagsins formenn hverrar

starfandi fagdeildar.

Stjórn kýs félaginu varaformann, ritara og gjaldkera á fyrsta fundi eftir aðalfund.

Style Switcher
Layout Style
Predefined Colors
Background Image