Leiðsögn
Kringlan 7, 103 Reykjavík
Kt. 510772-0249
Opið /Open
08:30 -16:00, mán.- fim.
08:30 -16:00, Mon. - Thur.
08:30 -15:00, föstudögum
08:30 -15:00, friday
Sími / Tel
+354 588 8670
Auka-aðalfundur Leiðsagnar 2021 verður haldinn þriðjudag 8. júní kl 19:00 að Stangarhyl 4 (hús Félags eldri borgara, eins og tvö síðustu ár).
Þessi fundur verður einnig netfundur með viðeigandi forriti (hlekkur kemur seinna)
Í samræmi við gildandi sóttvarnarreglur er grímuskylda og skráning í sæti á fundinum. Bent er á þetta er einnig netfundur og hægt að taka þátt í fundinum í gegnum fjarfundabúnað. Þeir sem nota fjarfundarbúnað er bent á að skrá sig inn með fullu nafni svo að hægt sé a bera saman við kjörskrá.
Dagskrá fundarins verður skv 22.gr laga félagsins með einni undantekningu: lið 4, lagabreytingum er vísað til starfshóps sem á að gera heildarúttekt á lögum félagsins og verður haldinn sérstakur auka-aðalfundur um það í haust, sem auglýstur verður sérstaklega.
Dagskrá
1. Kosning fundarstjóra og annarra starfsmanna fundarins
2. Skýrsla félagsstjórnar um störf félagsins á liðnu starfsári.
3. Reikningar félagsins og sjóða þess lagðir fram til afgreiðslu.
4. Tillögur um lagabreytingar ef fyrir liggja - frestað
5. Fjárhagsáætlun lögð fram og tillaga gerð um félagsgjald, fag- og sérdeildagjöld.
6. Kosning formanns eða lýsing formannskjörs.
7. Kosning til stjórnar.
8. Kosning til trúnaðarráðs.
9. Kosning fulltrúa í fastanefndir og aðrar trúnaðarstöður.
10. Kosning stjórnar sjúkrasjóðs félagsins.
11. Kosning tveggja félagskjörinna skoðunarmanna reikninga til tveggja ára.
12. Önnur mál.
Ársreikningar félagsins eru tilbúnir og liggja frammi á skrifstofu félagsins, en einnig á mínum síðum félagsmanna (minar.touristguide.is) sem eru með kjörgengi fyrir fundinn.
Framboð sem komin eru:
Formaður:
Friðrik Rafnsson
Óskar Kristjánsson
Stjórn og varastjórn:
Guðný Margrét Emilsdóttir
Harpa Björnsdóttir
Hjörtur Howser
Jakob Jónsson
Sigrún Pálsdóttir
Sigurður Albert Ármannsson
Snorri Steinn Sigurðsson
Valva Árnadóttir
Trúnaðarráð
Aldís Aðalbjarnardóttir
Áslaug J. Marinósdóttir
Birna Imsland
Guðni Gunnarsson
Guðný Margrét Emilsdóttir
Hildur Bjarnason
Hjörtur Howser
Indriði Haukur Þorláksson
Jakob Jónsson
Jónína Birna Halldórsdóttir
Kári Jónasson
Pétur Gunnarsson
Ragnheiður Ármannsdóttir
Sigurður Magnússon
Snorri Steinn Sigurðsson
Stefán Arngrímsson
Valva Árnadóttir
Þórhildur Sigurðardóttir
Fastanefndir:
Alþjóðanefnd:
Pétur Gunnarsson
Fagráð:
Indriði Haukur Þorláksson
Fræðslunefnd:
Guðný Margrét Emilsdóttir
Ritnefnd:
Sigurður Magnússon
Stjórn Sjúkrasjóðs:
Guðný Margrét Emilsdóttir
Lovísa Birgisdóttir
Pétur Gauti Valgeirsson
Ragnheiður Ármannsdóttir
Vilborg Anna Björnsdóttir
Þorsteinn Svavar McKinstry
Kjörgengi
Á aðalfundi félagsins 27. apríl síðastliðinn var ákveðið að láta kjörskrá fyrir aðalfund 2020 gilda líka núna. Þannig að kjörgengi hafa þeir sem uppfylla skilyrði laga félagins fyrir aðalfund 2021 og einnig þeir sem uppfylltu þau fyrir aðalfund árið 2020 auk þeirra sem hafa greitt lágmarksgjöld til félagsins.
Hluti af kosningunum verður rafrænn í gegnum kosningakerfi okkar á minar.touristguide.is
Dagskrá aðalfundarins verður samkvæmt lögum félagsins með einni undantekningu. Öllum lagabreytingum verður vísað til sérstaks starfshóps sem starfa á í sumar og fram á haust. Þessi starfshópur á að koma með heildstæð endurskoðuð lög félagsins. Í haust eða vetur verður sérstakur auka-aðalfundur þar sem farið verður gegnum öll lög félagsins og þau tekin til gagngerar endurskoðunar með heildarhagsmuni allra félagsmanna í huga. Innan félagsins eru margir hópar með ólíkar skoðanir en það er hægt að finna rúm fyrir alla innan vébanda félagins.
Kær kveðja
Pétur Gauti Valgeirsson
Formaður Leiðsagnar
Lög félagsins má finna hér:
https://www.touristguide.is/index.php/um-felagidh/loeg-og-reglugerdhir
Þessi vefsíða notar vafrakökur, með því að heimsækja vefsíðu okkar samþykkir þú notkun á vafrakökum. Sjá nánar.