05
Feb

Fyrirlestur um hlunnindi og lækningajurtir

Fræðslunefnd Leiðsagnar kynnir í samstarfi við Leiðsöguskóla Íslands:

FYRIRLESTUR UM HLUNNINDI OG HVERNIG ÞAU HAFA BREYST Í GEGNUM TÍÐINA; LÆKNINGAJURTIR OG NÝTINGU ÞEIRRA Í LYFJAIÐNAÐI - 19. FEBRÚAR 2025, KL. 17:00 - 18:00

Fyrirlesturinn er fjarfundur. Fyrirlesari er Roland R. Assier, kennari við Leiðsöguskóla Íslands í áratugi, og hefur hann kennt atvinnuvegi við skólann. Roland er líka fagmenntaður leiðsögumaður og útskrifaðist úr Leiðsöguskóla Íslands árið 1984.

Hér er slóð á skráningarformið: https://forms.office.com/e/vJJ84Q1itb?origin=lprLink

Skráning er til kl. 13:00 þann 19. febrúar 2025 og fá þátttakendur sendar glærur og slóð á fyrirlesturinn þegar skráningu er lokið.

Upptaka af fyrirlestrinum verður send til félagsmanna, þeirra sem skrá sig á hann og er upptakan aðgengileg í viku, eftir að hún hefur verið send til félagsmanna.

Vinsamlega leggið 2.000 kr. inn á reikning Leiðsöguskólans Íslands til að staðfesta þátttöku. Kt. 6808911419; bankaupplýsingar: 0537-26-012544

Ef fyrirtæki greiðir fyrir þátttakanda vinsamlega setjið nafn í skýringu á greiðslunni.

Við hlökkum til að sjá ykkur sem flest.

Kær kveðja,
Fræðslunefnd Leiðsagnar

Style Switcher
Layout Style
Predefined Colors
Background Image