27
Mars

Aðalfundur VR, sem haldinn var að kvöldi miðvikudagsins 26. mars 2025, samþykkti tillögu stjórnar félagsins um sameiningu við Leiðsögn

Aðalfundur VR, sem haldinn var að kvöldi miðvikudagsins 26. mars 2025, samþykkti tillögu stjórnar félagsins um sameiningu við Leiðsögn – félag leiðsögumanna. Leiðsögn hefur einnig samþykkt sameininguna fyrir sitt leyti og er stefnt að því að félögin sameinist frá og með 30. apríl næstkomandi.

 

Í rafrænni atkvæðagreiðslu á fundinum sögðu 61,6% fundargesta já eða 85 en 33,3% eða 46 sögðu nei. Alls tóku 7 ekki afstöðu til tillögunnar eða 5,1%. Einfaldan meirihluta þurfti fyrir samþykki.

Sameiningin á sér nokkur aðdraganda og hafa viðræður staðið yfir í nokkurn tíma. Um mitt ár 2024 var svo skrifað undir samning um sameiningu. Nú liggur fyrir samþykki aðalfundar VR og félagsfólk Leiðsagnar samþykkti sameiningu í allsherjaratkvæðagreiðslu fyrr í mánuðinum með 94,5% greiddra atkvæða.

 

VR tók yfir rekstur Leiðsagnar á síðasta ári og hefur síðan séð um kjaratengda þjónustu við leiðsögufólk. Stofnuð verður deild leiðsögufólks hjá VR.

 

sjá nánar 

https://www.vr.is/um-vr/frettir/almennar-frettir/adalfundur-samthykkir-sameiningu-vid-leidsogn/

Style Switcher
Layout Style
Predefined Colors
Background Image