×

Warning

JUser: :_load: Unable to load user with ID: 1411998
15
Sept

Sértilboð EHÍ - Haust 2022

Félagsmönnum Leiðsagnar býðst 20% afsláttur af tveimur námskeiðum á haustmisseri hjá Endurmenntun HÍ. Um er að ræða námskeið í öllum námskeiðsflokkum að undanskildum námskeiðum með erlendum sérfræðingum og námskeiðum sem tilheyra lengra námi. Skráning fer fram á heimasíðu Endurmenntunar. Til að virkja afsláttinn þarf að skrá kóðann SAMSTARFEHI22 í reitinn "Athugasemdir".
Athugið að við skráningu sjáið þið óbreytt námskeiðsverð. Afslátturinn kemur fram á greiðsluseðli.

Hlekkur á EHÍ : Námskeið á sértilboði samstarfsfélög (mailchi.mp)

08
Sept

Félagsfundur Leiðsagnar - 14. sept. kl. 17-20, Stórhöfða 29

Kæru leiðsögumenn.

Eins og flest ykkar vita eru kjarasamningar okkar lausir í nóvember. Þetta verkefni sem nú er framundan er mikilvægasta verkefni stéttarfélagsins. Þess vegna viljum við heyra í öllum leiðsögumönnum og halda opinn félagsfund miðvikudaginn 14.09.2022,  kl. 17-20 á Stórhöfða 29 um samningana.

Stjórn Leiðsagnar vill nýta fundinn til að fá fram skoðanir sem flestra leiðsögumanna á því hvað beri að leggja áherslu á í fyrirliggjandi samningum og ábendingar um hvað leiðsögumönnum finnst helst ábótavant í núverandi samningum og hvað þurfi fyrst og fremst að bæta.

Við tökum það skýrt fram að við erum ÖLL sammála um að laun leiðsögumanna eru alltof lág, þar af leiðandi verður launaliðurinn ekki til umræðu á þessum fundi.

Kv.

Snorri Steinn, formaður kjaranefndar.

 

In English

Dear members of Leiðsögn Union.

 Negotiations for a new collective agreement between Leiðsögn union and SA and SAF are now underways. This is by far the most important task of the union. Therefore, Leiðsögn would like to get the opinion of all its members. Leiðsögn would like to know what major issues should be emphasized in the forthcoming negotiations and what important issues are missing in the collective agreement now in force.

 Leiðsögn union is therefore calling for a open meeting, Wednesday, September. 14th, 17:00-20:00 at Stórhöfði 29, 110 Reykjavík.

 We ALL agree that the wages are too low and need to be raised. Thus, wage issues will not be on the agenda at this meeting.

 

Regards.

Snorri Steinn, chairman of Leiðsögn‘s Renumeration Committee.

23
Ágúst

Endurmenntunarsjóður úthlutar styrkjum í ágúst

Næsti fundur Endurmenntunarsjóðs Leiðsagnar verður haldinn í lok ágúst.

Umsóknir í sjóðinn þurfa að berast skrifstofu Leiðsagnar fyrir 26. ágúst.

Sótt er um styrki á heimasíðu Leiðsagnar og kvittanir fyrir útlögðum kostnaði settar í viðhengi með umsókninni.

Hér er krækja á umsóknareyðublaðið: https://www.touristguide.is/index.php/umsokn-ur-endurmenntunarsjodhi

Styrkveiting byggir á iðgjöldum af launum greiddum í Endurmenntunarsjóð Leiðsagnar og er framlag atvinnurekenda skv. kjarasamningum (gr. 10.3).

Reglugerð Endurmenntunarsjóðs: https://www.touristguide.is/index.php/sjukrasjodhur/endurmenntunarsjodhur

 

Dear members of Leiðsögn.

Next meeting of the Educational fund of Leiðsögn will be held at the end of the month. All applications have to be submitted before August 26th.

Applications are submitted here: https://www.touristguide.is/index.php/umsokn-ur-endurmenntunarsjodhi

Invoices have to be attached to the application

Allocations are based on legal fees paid of wages to Leiðsögn by employers in accordance with the Collective Agreement (art. 10.3).

Regulation: https://www.touristguide.is/index.php/sjukrasjodhur/endurmenntunarsjodhur

 

Með kveðju!

Endurmenntunarsjóður Leiðsagnar

23
Júní

Tilkynning frá Sjúkrasjóði Leiðsagnar – félags leiðsögumanna

Tilkynning frá Sjúkrasjóði Leiðsagnar – félags leiðsögumanna

Í samræmi við reglugerð Sjúkrasjóðs Leiðsagnar – félags leiðsögumanna ákvað stjórn sjóðsins á fundi þann 15. júní 2022 að hækka upphæð styrkja sem veittir eru félagsmönnum í samræmi við hækkun vísitölu neysluverðs. Upphæð styrkja hefur ekki verið endurskoðuð síðan árið 2018.

 

Hækkanir eru eftirfarandi:

 STYRKUR

 VAR  EFTIR HÆKKUN

 Líkamsrækt

  35.000    40.000

Sjúkrastyrkir

50.000 57.000

Krabbameinsleit

20.000 23.000

Hjartavernd

20.000 23.000

Dvöl á heilsustofnun

50.000 57.000

Gleraugu og aðgerðir

45.000 52.000
Heyrnartæki 45.000

52.000

Tannviðgerðir

60.000 70.000
13
Júní

Munið eftir að hlaða niður stafrænu félagsskírteinunum!

Kæru félagsmenn.

Munið eftir að hlaða niður stafrænu félagsskírteinunum ykkar!

Við höfum endursent tölvupóst til þeirra félagsmanna sem hafa ekki náð í stafrænu félagsskírteinin sín. Ef þið hafið ekki fengið tölvupóst í innhólfið skoðið þá einnig ruslpóstinn. Ef þið hafið ekki fengið tölvupóst þá gætum við verið með rangt netfang eða mögulega ekki verið með netfang ykkar. Hafið þá endilega samband við skrifstofuna á netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it..

08
Júní

Félagatal Leiðsagnar - félagsfólk hvatt til að skrá sig

Kæra leiðsögufólk,

Eitt af því sem félagsfólk hefur mjög kallað eftir um nokkurt skeið er listi yfir leiðsögufólk, svokallað félagatal. Undanfarin misseri hefur því verið unnið að því að þróa það og auðvelda þannig ferðaþjónustufyrirtækjum að finna hæft leiðsögufólk út frá ýmsum forsendum, tungumálum, tegund leiðsagnar, o.s.frv.

Leiðsögufólk sér sjálft um að skrá upplýsingar um sig og ber ábyrgð á að upplýsingarnar séu réttar og uppfærðar þegar þurfa þykir.

Skráningin er einföld:

  1. Skrá sig inn á félagavefinn efst í hægra horni hér á vefsíðu Leiðsagnar með rafrænum skilríkjum.
  2. Bein slóð innskráningar er: https://innskraning.island.is/?id=https://leidsogn.filmis
  3. Efst í hægra horni er nafn viðkomandi félagsmanns.
  4. Smellt er á flettigluggann og síðan á „mínar upplýsingar“.
  5. Á síðunni sem birtist skrá félagsmenn upplýsingar um sig, setja inn myndir og haka í viðkomandi reiti.
  6. Muna að vista síðuna!

Upplýsingarnar birtast síðan í félagatalinu á heimasíðu Leiðsagnar: https://www.touristguide.is/index.php/felagatal

Félagsfólk Leiðsagnar er hvatt til að skrá upplýsingar um sig inn í félagatalið sem allra fyrst. Skráning í félagatalið veitir aukin atvinnutækifæri fyrir leiðsögumenn. Fyrirspurnir og ábendingar er best að senda í netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

 
Bestu kveðjur,
 
Friðrik Rafnsson
 
formaður Leiðsagnar – félags leiðsögumanna
Style Switcher
Layout Style
Predefined Colors
Background Image