Leiðsögn
Kringlan 7, 103 Reykjavík
Kt. 510772-0249
Opið /Open
08:30 -16:00, mán.- fim.
08:30 -16:00, Mon. - Thur.
08:30 -15:00, föstudögum
08:30 -15:00, friday
Sími / Tel
+354 588 8670
Kæra leiðsögufólk
Nú er vor í lofti, farfuglarnir flykkjast til landsins og fylla loftið af tónlist náttúrunnar og náttúran er smám saman að vakna af vetrardvalanum.
Enda þótt ferðamannastraumurinn hafi verið allnokkur, jafnvel meiri en búist var við í vetur, eru komandi mánuðir háannatíminn nú sem fyrr.
Við tökum því fagnandi, en reynum samt að ganga hægt um þá gleðinnar dyr og vanda okkur ævinlega, jafnvel þegar álagið er mikið.
Nú líður að aðalfundi Leiðsagnar sem haldinn verður eftir hálfan mánuð, miðvikudaginn 3. maí, að Stórhöfða 29 í Reykjavík (gengið inn Grafarvogsmegin). Eins og fram hefur komið í pósti til félagsmanna er framboðsfrestur til formanns og stjórnar liðinn en frestur til að skila inn framboðum í aðrar trúnaðarstöður rennur út 23. apríl.
Listi yfir frambjóðendur hefur verið sendur félagsmönnum og það er sérstakt gleðiefni að óvenju mikill áhugi er meðal félagsmanna til að gefa kost á sér í til trúnaðarstarfa fyrir félagið, til formanns, í stjórn, trúnaðarráð og ýmissa annarra mikilvægra trúnaðarstarfa. Því ber að fagna og ég hvet ég ykkur öll til að neyta atkvæðisréttar ykkar þannig að kosningarnar endurspegli vilja félagsmanna sem allra best. Kjörsókn hefur verið afar dræm undanfarin ár, en með breyttu fyrirkomulagi, lengri tíma til að kjósa og kjósa rafrænt, mun kjörsókn vonandi verða mun betri en áður. Kosningar eru lýðræðishátíð, tökum öll þátt í henni! Frambjóðendum býðst að senda inn kynningu á sér og hafa nokkur þegar nýtt sér það. Sjá Félagavefinn á innri vef félagsins:
https://innskraning.island.is/?id=https://leidsogn.filmis
Eins og fram hefur komið í fyrri pistlum formanns og fundargerðum félagsins sem birtar eru á vef félagsins hefur margt áunnist þrátt fyrir snúnar aðstæður á stundum. Með metnaði og samheldni hefur þeim sem nú gegna trúnaðarstörfum tekist að lyfta grettistaki og því er starfsemi félagsins með miklum blóma.
Gleðilegt sumar!
Friðrik Rafnsson, formaður Leiðsagnar-félags leiðsögumanna.
AÐALFUNDUR LEIÐSAGNAR – FÉLAGS LEIÐSÖGUMANNA
Aðalfundur Leiðsagnar 2023 verður haldinn 3. maí, kl. 18:00 að Stórhöfða 29 (gengið inn Grafarvogsmegin).
Aðalfundurinn verður einnig netfundur og verður krækja á fundinn send út á fundardegi, þann 3. maí.
Dagskrá aðalfundar er eftirfarandi skv 22.gr laga félagsins.
Frestur til að skila inn framboðum til stjórnar og formanns rennur út 13. apríl.
Frestur til að skila inn framboðum til trúnaðarráðs og í fastanefndir rennur út 23. apríl.
Frestur til að senda inn lagabreytingatillögur rennur út 18. apríl.
Stjórnarkjör stendur yfir hjá Almenna lífeyrissjóðnum
12 frambjóðendur um tvö sæti
Rafrænt stjórnarkjör stendur yfir hjá Almenna lífeyrissjóðnum frá kl. 12:00 22. mars til kl. 16:00, miðvikudaginn 29. mars 2023. Úrslit verða kunngjörð á ársfundi sjóðsins sem fer fram á Grand Hótel Reykjavík kl. 17:15 fimmtudaginn 30. mars 2023. Streymt verður frá fundinum.
Tólf sjóðfélagar hafa boðið sig fram í tvö laus sæti í aðalstjórn en einnig verður kosið um eitt laust sæti konu í varastjórn. Eingöngu sjóðfélagar geta boðið sig fram og eingöngu sjóðfélagar geta kosið á milli þeirra.
Sérstakur kosningavefur er opinn á heimasíðu Almenna lífeyrissjóðsins þar sem hægt er að kynna sér frambjóðendur til stjórnar 2023 og greiða atkvæði. Smelltu hér til að fara inn á kosningavef Almenna.
Almenni lífeyrissjóðurinn hvetur sjóðfélaga að nýta lýðræðislegan rétt sinn og kjósa í rafrænu stjórnarkjöri sjóðsins.
Skyndihjálparnámskeið Leiðsagnar í samvinnu við Rauða krossinn
First-aid courses organized by Leiðsögn Union and the Icelandic Red Cross
Skyndihjálparnámskeiðin verða alls fimm, 4 á höfuðborgarsvæðinu og 1 á Akureyri. Eitt námskeið verður á ensku. Námkeiðin eru ókeypis fyrir félagsmenn Leiðsagnar. Eftir námskeiðið geta þátttakendur sótt rafrænt skyndihjálparskírteini á heimasíðu Rauða krossins.
Dagsetningar: 18. apríl, 25. apríl, 16. maí og á Akureyri 26. apríl.
In English : May 9th,
A first-aid course will be held in cooperation with the Icelandic Red Cross.
The first-aid course is free of charge for members of Leiðsögn Union. Participants can download a first-aid certificate from the Icelandic Red Cross webpage.
Ath! Hámark 30 þátttakendur komast á hvert námskeið.
Akureyri: Kennslusalur Rauða krossins, Viðjulundi 2, Akureyri. Tími: 18:00-22:00.
In English: May 9th at Strandgötu 24, Hafnarfjörður.
In Icelandic April 18th, April 25th, May 16th, April 25th in Akureyri.
Krækur til skráningar á námskeiðin hafa verið sendar á félagsmenn.
Kæru félagsmenn!
Perlan býður starfandi leiðsögumönnum á skemmtikvöldstund í Perlunni þann 28. mars frá kl. 20:00-22:00.
Perlan invites guides for a guide’s night March 28th between 20:00-22:00.
Leiðsögumenn eru beðnir að skrá sig hér / Please register here:
Góða skemmtun!
Kæra leiðsögufólk.
Nú stefnir í sérlega líflegt sumar í ferðaþjónustunni og þar af leiðandi miklar annir hjá okkur. Ég minni því á að leiðsögumenn verða að passa vel upp á að þeim verði greitt samkvæmt þeim kjarasamningi sem nýlega var gengið frá og láta félagið vita af því er svo er ekki, í tölvupóstfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.. Munið að samningurinn er afturvirkur til 1. nóvember 2022. Nýi kjarasamningurinn veitir okkur þó nokkrar kjarabætur, en betur má ef duga skal og er það viðfangsefni áframhaldandi kjaraviðræðna á næstu mánuðum. Sama viðræðunefnd sem vann að skammtímasamningnum, sem nú hefur tekið gildi til 31. janúar 2024, mun vinna að kjarasamningi til lengri tíma á næstu mánuðum, en áframhaldandi umboð hennar var samþykkt á fundi Trúnaðarráðs Leiðsagnar þann 14.mars síðastliðinn.
Í næstu viku verður félagsmönnum Leiðsagnar send skoðanakönnun sem er fyrst og fremst til þess hugsuð að fá yfirsýn yfir samsetningu félagsmanna með tilliti til kyns, aldurs, menntunar, vinnuframlags, ráðningasambands og fleira slíks. Ég hvet ykkur öll til að taka þátt í könnuninni, því fleiri sem taka þátt því marktækari verða niðurstöður hennar. Slík könnun er afar mikilvæg fyrir framtíðarstarf félagsins og komandi kjaraviðræður. Við framkvæmd könnunarinnar verður alfarið fylgt persónuverndarlögum og hún verður ekki persónugreinanleg.
Endilega takið sem flest þátt í henni til að við fáum gleggri mynd af samsetningu félagsins.
Undanfarin ár hafa faglærðir leiðsögumenn sem eru skuldlausir við félagið fengið sendan lítinn límmiða til að festa á félagsskírteinið sem gjarna er síðan haft í skildinum góða til að auðkenna okkur. Í ár verður í fyrsta skipti sent skírteini með ártalinu og nafni leiðsögumanns og verða þau sent í næstu viku til faglærða leiðsögumanna sem hafa greitt félagsgjaldið. Nánari upplýsingar veitir Ragnheiður í póstfanginu info@touristguide.
Starfsemi Leiðsagnar er með miklum blóma, fjárhagurinn traustur og mörg mikilvæg verkefni eru í vinnslu, meðal annars aukin tengslavinna innan stjórnkerfis og umhverfis ferðaþjónustunnar, vinna við raunfærnimat, menntun leiðsögumanna og alþjóðasamstarf. Nánar verður greint frá þessu á næsta aðalfundi félagsins sem verður haldinn þann 3. maí. Endilega takið daginn frá og mætið sem flest, enda er þetta í senn fagnaðarfundur okkar leiðsögumanna og sá fundur sem mótar stefnu félagsins og mannar trúnaðarstöður hverju sinni. Formleg tilkynning þess efnis verður send út bráðlega.
Kær kveðja,
Friðrik Rafnsson, formaður Leiðsagnar
Þessi vefsíða notar vafrakökur, með því að heimsækja vefsíðu okkar samþykkir þú notkun á vafrakökum. Sjá nánar.