Leiðsögn
Kringlan 7, 103 Reykjavík
Kt. 510772-0249
Opið /Open
08:30 -16:00, mán.- fim.
08:30 -16:00, Mon. - Thur.
08:30 -15:00, föstudögum
08:30 -15:00, friday
Sími / Tel
+354 588 8670
Auka-aðalfundur Leiðsagnar 2021 verður haldinn þriðjudag 8. júní kl 19:00 að Stangarhyl 4 (hús Félags eldri borgara, eins og tvö síðustu ár).
Þessi fundur verður einnig netfundur með viðeigandi forriti (hlekkur kemur seinna)
Í samræmi við gildandi sóttvarnarreglur er grímuskylda og skráning í sæti á fundinum. Bent er á þetta er einnig netfundur og hægt að taka þátt í fundinum í gegnum fjarfundabúnað. Þeir sem nota fjarfundarbúnað er bent á að skrá sig inn með fullu nafni svo að hægt sé a bera saman við kjörskrá.
Dagskrá fundarins verður skv 22.gr laga félagsins með einni undantekningu: lið 4, lagabreytingum er vísað til starfshóps sem á að gera heildarúttekt á lögum félagsins og verður haldinn sérstakur auka-aðalfundur um það í haust, sem auglýstur verður sérstaklega.
Dagskrá
1. Kosning fundarstjóra og annarra starfsmanna fundarins
2. Skýrsla félagsstjórnar um störf félagsins á liðnu starfsári.
3. Reikningar félagsins og sjóða þess lagðir fram til afgreiðslu.
4. Tillögur um lagabreytingar ef fyrir liggja - frestað
5. Fjárhagsáætlun lögð fram og tillaga gerð um félagsgjald, fag- og sérdeildagjöld.
6. Kosning formanns eða lýsing formannskjörs.
7. Kosning til stjórnar.
8. Kosning til trúnaðarráðs.
9. Kosning fulltrúa í fastanefndir og aðrar trúnaðarstöður.
10. Kosning stjórnar sjúkrasjóðs félagsins.
11. Kosning tveggja félagskjörinna skoðunarmanna reikninga til tveggja ára.
12. Önnur mál.
Ársreikningar félagsins eru tilbúnir og liggja frammi á skrifstofu félagsins, en einnig á mínum síðum félagsmanna (minar.touristguide.is) sem eru með kjörgengi fyrir fundinn.
Framboð sem komin eru:
Formaður:
Friðrik Rafnsson
Óskar Kristjánsson
Stjórn og varastjórn:
Guðný Margrét Emilsdóttir
Harpa Björnsdóttir
Hjörtur Howser
Jakob Jónsson
Sigrún Pálsdóttir
Sigurður Albert Ármannsson
Snorri Steinn Sigurðsson
Valva Árnadóttir
Trúnaðarráð
Aldís Aðalbjarnardóttir
Áslaug J. Marinósdóttir
Birna Imsland
Guðni Gunnarsson
Guðný Margrét Emilsdóttir
Hildur Bjarnason
Hjörtur Howser
Indriði Haukur Þorláksson
Jakob Jónsson
Jónína Birna Halldórsdóttir
Kári Jónasson
Pétur Gunnarsson
Ragnheiður Ármannsdóttir
Sigurður Magnússon
Snorri Steinn Sigurðsson
Stefán Arngrímsson
Valva Árnadóttir
Þórhildur Sigurðardóttir
Fastanefndir:
Alþjóðanefnd:
Pétur Gunnarsson
Fagráð:
Indriði Haukur Þorláksson
Fræðslunefnd:
Guðný Margrét Emilsdóttir
Ritnefnd:
Sigurður Magnússon
Stjórn Sjúkrasjóðs:
Guðný Margrét Emilsdóttir
Lovísa Birgisdóttir
Pétur Gauti Valgeirsson
Ragnheiður Ármannsdóttir
Vilborg Anna Björnsdóttir
Þorsteinn Svavar McKinstry
Kjörgengi
Á aðalfundi félagsins 27. apríl síðastliðinn var ákveðið að láta kjörskrá fyrir aðalfund 2020 gilda líka núna. Þannig að kjörgengi hafa þeir sem uppfylla skilyrði laga félagins fyrir aðalfund 2021 og einnig þeir sem uppfylltu þau fyrir aðalfund árið 2020 auk þeirra sem hafa greitt lágmarksgjöld til félagsins.
Hluti af kosningunum verður rafrænn í gegnum kosningakerfi okkar á minar.touristguide.is
Dagskrá aðalfundarins verður samkvæmt lögum félagsins með einni undantekningu. Öllum lagabreytingum verður vísað til sérstaks starfshóps sem starfa á í sumar og fram á haust. Þessi starfshópur á að koma með heildstæð endurskoðuð lög félagsins. Í haust eða vetur verður sérstakur auka-aðalfundur þar sem farið verður gegnum öll lög félagsins og þau tekin til gagngerar endurskoðunar með heildarhagsmuni allra félagsmanna í huga. Innan félagsins eru margir hópar með ólíkar skoðanir en það er hægt að finna rúm fyrir alla innan vébanda félagins.
Kær kveðja
Pétur Gauti Valgeirsson
Formaður Leiðsagnar
Lög félagsins má finna hér:
https://www.touristguide.is/index.php/um-felagidh/loeg-og-reglugerdhir
Eftirfarandi grein birtist í Fréttablaðinu föstudaginn 28. maí. Fagnaðarfréttir berast úr öllum áttum og bjartsýnin leynir sér ekki. Vonin dylst engum: Ferðaþjónustan er vöknuð, langvarandi atvinnuleysi leiðsögumanna er að breytast í eftirspurn eftir fagmenntuðum leiðsögumönnum.
Þetta eru gleðitímar. Nú stefnum við á það með samtakamætti að þessi jákvæða þróun haldi áfram og að ferðaþjónustan nái sér eftir harðindatíma.
Leiðsögn – stéttarfélag leiðsögumanna hefur notað tímann vel. Félagið hefur tekið þátt í starfshópi, sem skipaður var af ferðamálaráðherra síðastliðið haust, og sem hefur lagt fram tillögur um menntun og þjálfun leiðsögumanna. Tillögurnar, sem starfshópurinn hefur lagt fram eru framsýnar og metnaðarfullar og mesta ánægjuefnið er að allir sem að starfi hópsins komu – Ferðamálastofa, Menntamálaráðuneytið, Umhverfisráðuneytið, SAF – Samtök Aðila í Ferðaþjónustu og Leiðsögn – voru sammála um niðurstöðurnar.
Það eru sannarlega bjartir tímar framundan.
En þá birtast þeir, þessir örfáu, sem koma óorði á hópinn. Niðurrifsmennirnir.
Leiðsögn – stéttarfélag leiðsögumanna hefur haft fregnir af því að nokkur ófyrirleitin fyrirtæki í ferðaþjónustu hafa einsett sér að láta vonda afkomu síðasta árs bitna á leiðsögumönnum! Þeim hafa verið boðin smánarlaun og til að kóróna ömurleikann er kveðið uppúr með það, að einungis komi til greina að ráða leiðsögumenn í verktöku.
Slík skilyrði eru auðvitað ólögleg. Þessir atvinnurekendur kunna ekki til verka. Þekkja ekki landslög, hunsa kjarasamninga. Þeir eru að biðja um átök á vinnumarkaði.
Hvað finnst nú lesendum að leiðsögumenn eigi að gera? Það er erfitt að hafna vinnu eftir langvarandi atvinnuleysi. Á að samþykkja boð um vinnu, jafnvel þótt kjörin séu verri en kjarasamningar kveða á um? Eiga leiðsögumenn að sniðganga þessa atvinnurekendur og lenda í verri fátæktargildru?
Spurningunum verður að svara: Hvað á að gera? Hvað er hægt að gera?
Pétur Gauti Valgeirsson
Formaður Leiðsagnar – stéttarfélags leiðsögumanna
Jakob S. Jónsson
Formaður Kjaranefndar Leiðsagnar
Auka-aðalfundur Leiðsagnar 2021 – þriðjudag 8. júní kl 19:00 að Stangarhyl 4 (hús Félags eldri borgara, eins og tvö síðustu ár). Þessi fundur verður einnig netfundur á Zoom (hlekkur kemur seinna)
Auka-aðalfundur félagsins verður þriðjudaginn 8. júní n.k. kl. 19:00 og framboðsfrestur er að renna út og hvetjum við því félagsmenn til að bjóða fram krafta sína. Enn sem komið er hafa ekki margar konur boðið sig fram og hvetjum við því þær sérstalega til að gefa kost á sér. Sama á við um félagsmenn utan höfuðborgarsvæðisins.
Framboðfresti lýkur 10 sólarhringum fyrir aðalfund (sem sagt á morgun laugardag 29.5.) og framboðum skal skila til skrifstofu. Nægir að senda tölvupóst til This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
Jafnframt má hafa samband við kjörnefnd með uppástungur fyrir framboð. Í kjörnefnd eru Valva Árnadóttir, Guðný Margrét Emilsdóttir og Júlíus Freyr Theodórsson.
Kjósa þarf formann, 2 fulltrúa í stjórn til tveggja ára, 4 fulltrúa í varastjórn til eins árs, aðal og varamenn í trúnaðarráð (sex fulltrúa í hvort, alla til eins árs), fulltrúa fastanefndir (4 nefndir, einn fulltrúa í hverja til tveggja ára, sjá 18.gr. laganna) og tvo skoðunarmenn reikninga. EInnig þarf að kjósa í stjórn sjúkrasjóðs.
Enn vantar nokkra fulltrúa, það vantar 1-2 í stjórn og 1-2 í sjúkrasjóð.
Komið er nóg af framboðum í aðrar stöður.
Við hvetjum félagsmenn af öllum kynjum til að gefa kost á sér til að starfa fyrir félagið. Framundan er spennandi uppbyggingarvinna félagsins í takt við rísandi sól ferðaþjónustunnar. Á tímum COVID og samkomutakmarkana höfum við lært á fjarfundi og hvernig má vinna saman án þess að vera endilega í sama rými og því er upplagt fyrir félagsmenn sem búa úti á landi til að láta rödd sína heyrast og taka þátt í starfi félagsins.
Framboð sem komin eru:
Formaður:
Friðrik Rafnsson
Óskar Kristjánsson
Stjórn og varastjórn:
Guðný Margrét Emilsdóttir
Hjörtur Howser
Jakob Jónsson
Snorri Steinn Sigurðsson
Valva Árnadóttir
Kjörgengi
Á aðalfundi félagsins 27. apríl síðastliðinn var ákveðið að láta kjörskrá fyrir aðalfund 2020 gilda líka núna. Þannig að kjörgengi hafa þeir sem uppfylla skilyrði laga félagins fyrir aðalfund 2021 og einnig þeir sem uppfylltu þau fyrir aðalfund árið 2020 auk þeirra sem hafa greitt lágmarksgjöld til félagsins.
Hluti af kosningunum verður rafrænn í gegnum kosningakerfi okkar á minar.touristguide.is
Dagskrá aðalfundarins verður samkvæmt lögum félagsins með einni undantekningu. Öllum lagabreytingum verður vísað til sérstaks starfshóps sem starfa á í sumar og fram á haust. Þessi starfshópur á að koma með heildstæð endurskoðuð lög félagsins. Í haust eða vetur verður sérstakur auka-aðalfundur þar sem farið verður gegnum öll lög félagsins og þau tekin til gagngerar endurskoðunar með heildarhagsmuni allra félagsmanna í huga. Innan félagsins eru margir hópar með ólíkar skoðanir en það er hægt að finna rúm fyrir alla innan vébanda félagins.
Leiðsögn, stéttarfélag leiðsögumanna og SAF óska eftir því að leiðsögumenn verði settir framar í röðina fyrir bólusetningu vegna COVID19.
Ástæður eru tvennar:
Hluti leiðsögumanna er þegar orðinn bólusettur sökum aldurs en æskilegast er að allir leiðsögumenn verði bólusettir sem fyrst þar sem kröfur erlendra ferðaskrifstofa framlengja að öðrum kosti veru þeirra á atvinnuleysisskrá með tilheyrandi kostnaði fyrir samfélagið.
Með bestu kveðju
Pétur Gauti Valgeirsson
Formaður Leiðsagnar, stéttarfélags leiðsögumanna
Jóhannes Þór Skúlason
framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar
Fyrir rúmri viku var haldinn stuttur aðalfundur Leiðsagnar á netfundsformi.
Þar var eitt mál á dagskrá, að víkka út kjörskrá og setja þá sem voru á kjörskrá fyrir aðalfund 2020 líka á kjörskrá fyrir árið 2021. Þessi tillaga var einróma samþykkt.
Öllum öðrum málum var frestað til auka-aðalfundar.
Hér með er boðað til auka-aðalfundar Leiðsagnar, þriðjudaginn 8. júní 2021, með fyrirvara að sóttvarnarreglur leyfi fundi.
Dagskrá aðalfundarins verður samkvæmt lögum félagsins með einni undantekningu. Öllum lagabreytingum verður vísað til sérstaks starfshóps sem starfa á í sumar og fram á haust. Þessi starfshópur á að koma með heildstæð endurskoðuð lög félagsins. Í haust eða vetur verður sérstakur auka-aðalfundur þar sem farið verður gegnum öll lög félagsins og þau tekin til gagngerrar endurskoðunar með heildarhagsmuni allra félagsmanna í huga. Fyrir aðalfundinn sem var haldinn í síðustu viku bárust margar lagabreytingatillögur og verður þeim beint til fyrirhugaðas starfshóps sem og tillögum sem berast á næstu dögum. Innan félagsins eru margir hópar með ólíkar skoðanir, en það er hægt að finna rúm fyrir alla innan vébanda félagins.
Tillögur að lagabreytingum verða að berast skrifstofu félagsins 15 dögum fyrir aðalfund (sjá gr. 29 í lögum félagsins).
Framboðfresti lýkur 10 sólarhringum fyrir aðalfund og framboðum skal skila til skrifstofu.
Jafnframt má hafa samband við kjörnefnd með uppástungur fyrir framboð. Í kjörnefnd eru Valva Árnadóttir, Guðný Margrét Emilsdóttir og Júlíus Freyr Theodórsson.
Kjósa þarf formann, 2 fulltrúa í stjórn til tveggja ára, 4 fulltrúa í varastjórn til eins árs, aðal og varamenn í trúnaðarráð (sex fulltrúa í hvort, alla til eins árs), fulltrúa fastanefndir (4 nefndir, einn fulltrúa í hverja til tveggja ára, sjá 18.gr. laganna) og tvo skoðunarmenn reikninga.
Þau framboð sem þegar hafa borist gilda áfram nema viðkomandi dragi framboð sitt til baka.
Minnt er á að 12. Umhverfisþingið verður í beinu streymi á morgun, 27. apríl. Umfjöllunarefni þingsins eru náttúruvernd, loftslagsmál og hringrásarhagkerfið. Þingið fer fram rafrænt og stendur frá kl. 13 – 16.
Þingið er öllum opið og verður því streymt á vef Stjórnarráðsins og á Facebook.
Dagskrá, skráningu og nánari upplýsingar má finna á www.umhverfisthing.is
Þessi vefsíða notar vafrakökur, með því að heimsækja vefsíðu okkar samþykkir þú notkun á vafrakökum. Sjá nánar.